Allan sólarhringinn

Bifreiðaþjónusta

Þarftu að láta draga bíl, lyftara, vinnuvél, mótorhjól eða annað farartæki? Vaka sinnir dráttarbílaþjónustu alla daga, allan sólarhringinn, allt árið um kring.

Vaka fjarlægir einnig ökutæki sem eru staðsett á lóð í óþökk eiganda og ökutæki sem lagt er í einkastæði eða ólöglega.

Dráttarbílar

Bifreiðaflutningar

Dráttarbílaþjónusta Vöku flytur allar gerðir ökutækja og er með neyðarþjónustu allan sólarhringinn.

Hver sem ástæðan er, hvort sem flutt er milli eigenda, í viðgerð eða förgun, höfum við úrvalsbúnað og vel þjálfaða starfsmenn sem sinna verkefnunum bæði fljótt og örugglega.

Sjá verð og bóka

Við hjálpum

Vegaaðstoð

Við hjálpum ef bíllinn er að stríða þér.

Við opnum flesta læsta bíla

Við losum bíla úr festu

Við gefum þér start ef þú ert rafmagnslaus

Við hjálpum þér með eldsneyti ef tankurinn er tómur

Við drögum þig að hleðslustöð ef rafmagnið þrýtur

Við skiptum um dekk og pumpum í ef þess þarf

Panta aðstoð