Bifreiðaþjónusta

Einkastæði

Vaka fjarlægir ökutæki sem eru staðsett á lóð í óþökk eiganda og ökutæki sem lagt er í einkastæði eða ólöglega. Fylltu út beiðni til að láta fjarlægja ökutæki.

Athugið

Einkastæðisbeiðnir eru einungis afgreiddar á skrifstofutíma, mánudaga til föstudaga kl. 08:00–16:00. Ef erindið er brýnt skaltu hringja í lögreglu, því bílstjórar á neyðarvaktinni hafa ekki heimild til að taka einkastæði nema búið sé að fara yfir það á skrifstofunni.


    Eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja beiðninni:










    Skilmálar og staðfesting


    Beiðni þess efnis að fjarlægja ökutækið/hlutinn af umræddri einkalóð þarf að berast frá aðila sem er í forsvari fyrir lóðina og er viðkomandi einstaklingur/fyrirtæki/húsfélag í ábyrgð fyrir aðgerðinni, þar sem Vaka HF er einungis þjónustuaðili.

    Sé um húsfélag og/eða fyrirtæki að ræða, þarf viðkomandi að vera með heimild frá því húsfélagi/fyrirtæki til að vinna í umboði þess.

    Mynd af ökutækinu/hlutnum sem á að fjarlægja þarf að fylgja beiðninni sem sýnir umrætt ökutæki í heild sinni og nánasta umhverfi.

    Sá sem óskar eftir því að láta fjarlægja ökutæki/hlut gæti þurft að greiða lágmarkskostnaði við flutning og geymslu. Til þess kemur eingöngu ef að skráður eigandi ökutækis/hlutar vitjar ekki eigna sinna og ekki tekst að birta greiðsluáskorun. Ökutækið/hluturinn er einungis sett á sýslumannsuppboð fyrir lágmarkskostnaði sé það metið svo að það beri fjárhagslegan ávinning. Að öðrum kosti verður ökutækinu/hlutnum fargað.

    Lágmarkskostnaður er samkvæmt gildandi gjaldskrá Vöku HF hverju sinni, flutningskostnaður, innskráningargjald og fimm sólarhringar í geymslu.