Bifreiðaþjónusta
Bifreiðaflutningar
Þarftu að láta draga bíl, lyftara, vinnuvél, mótorhjól eða annað farartæki? Vaka sinnir dráttarbílaþjónustu alla daga, allan sólarhringinn, allt árið um kring. Þú getur pantað flutning í gegnum beiðnina eða með því að hringja í 567 6700.
Dráttarbílaþjónusta Vöku flytur allar gerðir ökutækja og er með neyðarþjónustu allan sólarhringinn. Vaka fjarlægir einnig ökutæki sem eru staðsett á lóð í óþökk eiganda og ökutæki sem lagt er í einkastæði eða ólöglega.
Áður en óskað er eftir að bíll verði fjarlægður
Berist ósk um að bifreið verði fjarlægð af einkalóð, þarf beiðnin að koma frá aðila sem er í forsvari fyrir viðkomandi lóð, hvort sem um er að ræða þinglýstan eiganda eða leigjanda samkvæmt þinglýstum leigusamningi.
Verðskrá
Dagtaxti dráttarbíla
Gildir mánudaga til föstudaga kl. 8:00–17:00 og miðast við höfuðborgarsvæðið sem afmarkast af Esjumelum við Vesturlandsveg, Olís Norðlingaholti við Suðurlandsveg og álverinu Straumsvík við Reykjanesbraut.
Fólksbílar
23.000 kr.
Jeppar, rafmagnsbílar og stærri ökutæki að 5t
25.000 kr.
Vinnuvélar undir 5t
26.500 kr.
Vinnuvélar og ökutæki 5t til 10t
33.000 kr.
Kvöldtaxti dráttarbíla
Gildir á öllum tímum utan dagtaxta og á almennum frídögum og miðast við sama svæði og dagtaxti.
Fólksbílar
38.000 kr.
Jeppar, rafmagnsbílar og stærri ökutæki að 5t
42.500 kr.
Vinnuvélar undir 5t
41.000 kr.
Vinnuvélar og ökutæki 5t til 10t
50.000 kr.
Önnur gjöld
Óvænt ástand
5.000 kr.
Ef bifreið er lyklalaus, án dekkja eða í ástandi þar sem krafist er sérbúnaðar við flutning.
Skráning
7.000 kr.
Gjald vegna skráningar og afgreiðslu inn í vaktað vörsluport.
Inni geymsla
4.500 kr.
Sólarhringsgjald fyrir innigeymslu á bifreiðum undir 4 tonnum.
Úti geymsla
4.000 kr.
Sólarhringsgjald fyrir útigeymslu á bifreiðum undir 4 tonnum.
Tilboð í stærri flutninga
Við gerum föst tilboð í flutninga utan höfuðborgarsvæðisins sem og vegna flutninga á tækjum yfir 10 tonnum. Sendið fyrirspurnir á flutningar@vaka.is eða hringið í 567 6700.
Senda fyrirspurn