Bókaðu flutning
Bifreiðaflutningar
Þarftu að láta draga bíl, lyftara, vinnuvél, mótorhjól eða annað farartæki? Vaka sinnir dráttarbílaþjónustu alla daga, allan sólarhringinn, allt árið um kring. Þú getur pantað flutning með því að fylla út formið hér á síðunni, eða með því að hringja í síma 567 6700.
Dráttarbílaþjónusta Vöku flytur allar gerðir ökutækja og er með neyðarþjónustu allan sólarhringinn.
Hver sem ástæðan er og hvort sem verið er að flytja bíl milli eigenda, í viðgerð eða förgun þá höfum við yfir að ráða úrvalsbúnaði og vel þjálfuðum starfsmönnum sem sinna þessum verkefnum bæði fljótt og örugglega.
Vaka fjarlægir einnig ökutæki sem eru staðsett á lóð í óþökk eiganda og ökutæki sem lagt er í einkastæði eða ólöglega.
Eftirfarandi þarf að hafa í huga áður en óskað er eftir að bíll verði fjarlægður:
Berist ósk um að bifreið verði fjarlægð af einkalóð, þarf beiðnin að koma frá aðila sem er í forsvari fyrir viðkomandi lóð, hvort sem um er að ræða þinglýstan eiganda eða leigjanda samkvæmt þinglýstum leigusamningi.
Sjá einnig: Skilmála um ábyrgð beiðenda.
Dagtaxti dráttarbíla
Neðangreind verð gilda mánudaga til föstudaga frá kl. 7:30 til 17:00 og miðast við höfuðborgarsvæðið sem afmarkast af Leirvogstungu við Vesturlandsveg, Norðlingaholt við Suðurlandsveg og Straumsvík við Reykjanesbraut.
Minni bílar
Stærri bílar að 5t
Tæki að 5 tonnum
Tæki að 10 tonnum
Tilboð í stærri flutninga
Við gerum föst tilboð í flutninga utan höfuðborgarsvæðisins sem og vegna flutninga á tækjum yfir 10 tonnum. Sendið fyrirspurnir á [email protected] eða hringið í síma 567 6700.
Kvöldtaxti dráttarbíla
Neðangreind verð gilda á öllum tímum utan dagtaxta sem og á öllum almennum frídögum og miðast við höfuðborgarsvæðið sem afmarkast af Leirvogstungu við Vesturlandsveg, Norðlingaholt við Suðurlandsveg og Straumsvík við Reykjanesbraut.