Prolong dísil meðferðin inniheldur hágæða hreinsiefni til að hreinsa spíssa og eldsneytiskerfið í heild sinni. Efnið verndar gegn tæringu, dregur úr svörtum reyk og minnkar uppsöfnun sóts sem dregur úr afköstum og eykur eldsneytiseyðslu. Efnið eykur einnig smureiginleika dísilolíunnar og verndar því dælur og innspýtingarspíssa. Uppfyllir L-10 staðalinn um bætiefni dísilolíu er varða hreinleika spíssa og N-14 bætiefnastaðalinn frá Cummins, er varðar tæringu vegna eldsneytis með lágt/hátt sulfur-innihald.
Hjálpar til við að minnka eldsneytiseyðslu og auka afköst
Hreinsar og smyr spíssa til að ná hámarks skilvirkni